fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Dæmdur í rúmlega fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun á skemmtistað

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 09:24

Alves og Sanz.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daniel Alves fyrrum leikmaður Barcelona hefur verið dæmdur í rúmlega fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á skemmistað þar í borg. Dómur var kveðinn upp í dag.

Hann þarf að greiða fórnarlambi sínu 150 þúsund evrur í bætur eða um 20 milljónir króna.

Alves var handtekinn í Barcelona í byrjun síðasta árs, grunaður um kynferðisbrot á skemmtistað þann 30. desember. Bakvörðurinn hefur neitað sök síðan og sagt að hann hafi stundað kynlíf sem báðir aðilar vildu.

Alves hefur síðan þá verið fastur á bak við lás og slá á meðan málið hefur verið í kerfinu.

Hann hefur ítrekað reynt að fá að vera laus gegn tryggingu en yfirvöld á Spáni vildu það ekki, töldu þau að Alves gæti reynt að flýja heim til Brasilíu.

Alves er fertugur og á glæstan feril að baki. Hann hefur unnið alla stærstu titlanna í félagsliðaboltanum og leikið með liðum á borð við Barcelona, Juventus og Paris Saint-Germain.

Alves varð elsti leikmaður til að spila fyrir hönd Brasilíu á HM í Katar árið 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug