fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
Fréttir

Grindvíkingar geta dvalið í bænum að vild en gera það á eigin ábyrgð

Ritstjórn DV
Mánudaginn 19. febrúar 2024 13:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkislögreglustjóri hefur fallið frá fyrirmælum um brottflutning úr Grindavík frá og með deginum í dag. Hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekið þá ákvörðun að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn. Gildir sú ákvörðun frá og með morgundeginum.

Í tilkynningu lögreglu eru þeir sem ákveða að gera þetta hvattir til að kynna sér neðangreint:

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í lamasessi. Stofnlögn heitavatns til bæjarins lekur, að því er talið er undir hrauni, en leitað er bilunar. Það eru tilmæli til fólks að ekki sé hróflað við stillingum heitavatns í húsum. Kalt vatn er ekki komið á og því ekkert neysluvatn. Aðstæður eru því aðrar en þær sem telja má boðlegar fyrir búsetu í húsum.

  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun,jarðsjármælingumog sjónskoðun.

  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við gangstéttir og götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.

  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.

Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svartsengi.

Gefnir verða út QR kóðar fyrir Grindvíkinga og þá sem starfa í bænum. Gert er ráð fyrir því að þeir gildi til lengri tíma en verið hefur.

Lyklar að íbúum/húsum eru í vörslu viðbragðsaðila en talið er hentugt að halda óbreyttu fyrirkomulagi vegna eftirlits með lagnakerfum í húsum eitthvað áfram.

Lokunarpóstar verða áfram á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.

Fjölmiðlafólki verður gert kleift að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja. Sækja þarf um QR kóða.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrír almannavarnalúðrar eða sírenur í Grindavík. Þá er einn slíkur við Bláa lónið og annar við orkuverið í Svartsengi.

Lögreglustjóri á ekki von á því að margir Grindvíkingar kjósi að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því.

Dregið verður úr viðveru viðbragðsaðila í Grindavík en lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi kl. 7 í fyrramálið, þriðjudaginn 20. febrúar 2024 en verður endurskoðað 29. febrúar 2024 að öllu óbreyttu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fór í hart vegna meðferðarheimilis – Hefur ekkert á móti starfseminni en tryggja þurfi betur öryggi og vandaðri málsmeðferð

Fór í hart vegna meðferðarheimilis – Hefur ekkert á móti starfseminni en tryggja þurfi betur öryggi og vandaðri málsmeðferð
Fréttir
Í gær

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“

Vilborg segir hugmyndina skelfilega – „Myndir þú vilja láta bjóða þér þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mikill órói í sveitarstjórn Vopnafjarðar – Sveitarstjórinn látinn fara

Mikill órói í sveitarstjórn Vopnafjarðar – Sveitarstjórinn látinn fara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“

Flestir telja að þessi umtalaða kynlífsstelling sé verulega ofmetin – „Ég er ekki aðdáandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leggja til að Samhjálp fari eitthvert annað

Leggja til að Samhjálp fari eitthvert annað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína

Tiltekt þarf ekki að vera kvöl og pína