fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fréttir

Mikill leki í heitavatnslögninni til Grindavíkur

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 16. febrúar 2024 11:52

Frá gosstöðvum nærri Grindavík 15. janúar síðastliðinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrýstingur á heitavatnslögninni til Grindavíkur er mjög lágur þessa stundina vegna mikils leka, bæði á stofnæðinni til bæjarins og í dreifikerfinu í bænum.

Í tilkynningu sem Almannavarnir sendu frá sér rétt fyrir hádegi kemur fram að leit sé hafin að biluninni og reynt verður að gera við hana sem fyrst.

Réttast þótti í stöðunni að grafa niður á bilunina frekar en að leggja nýja lögn yfir hraunið,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram að það sé mikil áskorun fyrir almannavarnakerfið að halda uppi hita í húsum í Grindavík.

„Til að koma vatni um hitakerfi húsanna við þær aðstæður sem uppi hafa verið síðustu vikur og mánuði,  breyttu píparar á vegum Almannavarna stillingu þrýstijafnara í inntaksgrindum og lokuðu fyrir neysluvatn og hleyptu vatni af þeim til öryggis. Þetta var talið mikilvægt að gera því það er nánast ómögulegt að tryggja eðlilega vatnsnotkun, því smávægileg breyting á stillingu þrýstijafnara eða smávægileg breyting í þrýstingi í dreifikerfinu getur þýtt að annað hvort hætti rennsli um hitakerfi húsanna alveg eða þá að rennslið stóraukist,“ segir í tilkynningunni.

Vegna þessa er mikilvægt að húseigendur sem fara inn í húsin sín í Grindavík hafi eftirfarandi í huga.

  • Vegna mikils leka í stofnæð og dreifikerfi er mikilvægt að breyta ekki stillingum í inntaksgrind.
  • Í sumum íbúðum er hiti í lægri kantinum og í öðrum er hitinn mikill. Ástæðan er sú að vegna mjög lágs þrýstings í dreifikerfinu er ómögulegt að stýra rennslinu nákvæmlega.
  • Píparar á vegum Almannavarna lokuðu fyrir neysluvatn og tæmdu neysluvatnslagnir til að draga úr líkum á tjónum ef hiti færi aftur af byggðinni. Mikilvægt er að húseigendur opni ekki aftur fyrir neysluvatnslagnirnar af þessum sökum.

Píparar á vegum Almannavarna lokuðu gluggum til að draga úr kælingu húsanna og mikilvægt er að húseigendur loki gluggum aftur þegar þeir yfirgefa íbúðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu

Eva Björg breytti handriti sem reyndist of líkt Birnumálinu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“

Sakar Samtök skattgreiðenda um að hagræða sannleikanum – „Það er einstaklega ógeðfelldur tónn í þessari grein“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fær að bera barnsmóður sína út eftir allt saman

Fær að bera barnsmóður sína út eftir allt saman
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Baldvin komst við og rödd hans brast í viðtali við Bylgjuna – „Þetta hefur hreinlega farið með hann“

Baldvin komst við og rödd hans brast í viðtali við Bylgjuna – „Þetta hefur hreinlega farið með hann“
Fréttir
Í gær

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“
Fréttir
Í gær

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“