

Gvatemala 0 – 1 Ísland
0-1 Ísak Snær Þorvaldsson (’79)
Ísland vann tæpan sigur í vináttulandsleik í nótt er lðiðið spilaði við Gvatemala í Bandaríkjunum.
Leikurinn hófst klukkan 23:30 að íslenskum tíma og var frammistaðan nokkuð góð frá strákunum.
Eitt mark var skorað en það gerði Ísak Snær Þorvaldsson er um 11 mínútur voru eftir af leiknum.
Ísak er leikmaður Rosenborg í Noregi en hann var að skora sitt fyrsta landsliðsmark á ferlinum.
Næsti leikur Íslands er á fimmtudaginn en þá leikur liðið við Hondúras.