fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

McTominay eftir jafnteflið: ,,Fengum okkar færi til að særa þá“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 17. desember 2023 18:45

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Scott McTominay lék með Manchester United í dag sem spilaði við Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Þessum leik lauk með markalausu jafntefli en Liverpool var töluvert sterkari aðilinn og átti 34 skot að marki gestanna.

McTominay segir að það séu jákvæðir punktar sem leikmenn United geti tekið úr þessum leik en færin voru af skornum skammti.

,,Við erum að glíma við töluverð meiðsli í leikmannahópnum og við vissum að verkefnið yrði erfitt en við vorum rólegir, stóðum saman og fengum okkar færi til að særa þá,“ sagði McTominay.

,,Það er svekkjandi að við gátum ekki gert frekari leik úr þessu en ég er viss um að strákarnir séu ánægðir með hluta af þessu.“

,,Við getum ekki gleymt síðasta ári og strákarnir gáfu allt í verkefnið í dag. Við erum með unga leikmenn sem eru að koma inn í liðið.“

,,Að vera fyrirliði í dag var minn stærsti heiður á ferlinum, ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Ég er þakklátur að fá tækifærið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug