fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stuðningsmenn United brjálaðir yfir þessum ummælum Ten Hag eftir tapið í gær

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. desember 2023 08:23

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United er úr leik í Meistaradeild Evrópu en liðið komst ekki upp úr riðlakeppninni.

Þetta varð ljóst í gær en liðið tapaði 0-1 gegn Bayern Munchen. Þurfti það að treysta á jafntefli í leik FCK og Galatasaray og vinna Bayern en Danirnir unnu sinn leik og sigur hefði því ekki dugað lærisveinum Erik ten Hag.

Hollendingurinn var þó nokkuð brattur eftir leik.

„Við klúðruðum riðlakeppninni ekki í dag. Við sýndum góða frammistöðu en gerðum nokkur mistök. Þetta var ekki nógu gott þegar alltkemur til alls en mér fannst liðið standa sig mjög vel. Við áttum ekki skilið að tapa,“ sagði hann.

„Ég verð að hrósa liðinu fyrir hvernig það spilaði gegn mjög góðu Bayern liði.“

Stuðningsmenn United voru margir hverjir ekki hrifnir af þessum ummælum.

„Jesús, hvað er hann að horfa á?“ skrifaði einn netverji en athygli var vakin á þeim í enskum miðlum.

„Hvað í andskotanum var ég að lesa? Hann er búinn að tapa sér. Að hann telji þetta gott sýnir á hvaða stað við erum,“ skrifaði annar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug