fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
433Sport

Piers Morgan hjólar í Klopp og segir hann farinn að finna fyrir þessu

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 7. desember 2023 12:00

Piers Morgan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp var allt annað en sáttur við fjölmiðlamanninn Marcus Buckland er hann mætti í viðtal á Amazon eftir sigur Liverpool á Sheffield United í gær. Fjölmiðlamaðurinn umdeildi Piers Morgan gagnrýnir Þjóðverjann harðlega fyrir viðbrögð sín.

Liverpool vann 0-2 með mörkum frá Virgil van Dijk og Dominik Szoboszlai.

Næsti leikur Liverpool er gegn Crystal Palace í hádeginu á laugardag en Klopp hefur áður gagnrýnt þann leiktíma. Buckland ákvað að grínast með það í beinni útsendingu í gær og sagði í gríni að það væri uppáhalds leiktími þýska stjórans.

„Það er frábært að þú skulir grínast með þetta,“ svaraði ósáttur Klopp í kaldhæðnistón.

Buckland sagði að hann hafi ekki ætlað sér að sýna vanvirðingu.

„Þú ert samt búinn að því,“ svaraði Klopp þá beittur og hélt áfram.

„Þú ert mjög hugrakkur að grínast með þetta. Vði förum að sofa 1 eða 2 í nótt, æfum tvisvar og spilum svo aftur. Þú skilur þetta ekki en starfar í fótboltaheiminum svo af hverju ætti ég að útskýra þetta aftur.“

Morgan hafði ekki gaman að þessum svörum Klopp.

„Klopp er með mjög slakan húmor þarna,“ segir hann.

„Eins og Pep virðist hann átta sig á veldinu sem Arsenal er að verða í deildinni,“ bætir hann við en Morgan er mikill stuðningsmaður Arsenal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Bruno og Dalot fá lengra frí til að ná áttum eftir helgina

Bruno og Dalot fá lengra frí til að ná áttum eftir helgina
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Staðfestir ástarsamband sitt með áhrifavaldi

Staðfestir ástarsamband sitt með áhrifavaldi
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Elvar varpar fram kenningu – Er Ólafur að máta sig við stól Þorsteins?

Elvar varpar fram kenningu – Er Ólafur að máta sig við stól Þorsteins?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Coutinho losnaði loksins frá Villa

Coutinho losnaði loksins frá Villa
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þorsteinn eftir tapið: ,,Vorum ekki nógu góð til að klára þennan leik“

Þorsteinn eftir tapið: ,,Vorum ekki nógu góð til að klára þennan leik“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta hefur þjóðin að segja um grátlegt kvöld – „Þá þýðir það að KSÍ tekur kvennabolta ekki alvarlega“

Þetta hefur þjóðin að segja um grátlegt kvöld – „Þá þýðir það að KSÍ tekur kvennabolta ekki alvarlega“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Mourinho tjáir sig um Jota: ,,Alltaf hluti af fjölskyldunni á Anfield“

Mourinho tjáir sig um Jota: ,,Alltaf hluti af fjölskyldunni á Anfield“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“