fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Fókus

Klámstjarna látin 36 ára – Eiginmaðurinn dó líka fyrir stuttu síðan

Fókus
Þriðjudaginn 5. desember 2023 10:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska klámmyndaleikkonan Sophie Anderson er látin, 36 ára að aldri. Banamein hennar liggur ekki fyrir en aðeins eru tvær vikur síðan eiginmaður hennar, Oliver Spedding, lést.

Það var kollegi Sophie, Rebecca More, sem tilkynnti andlát hennar á samfélagsmiðlum en þær unnu saman um nokkurra ára skeið á sínum tíma.

Sjá einnig: Klámstjarna látin aðeins 34 ára – Tók afar óvænta U-beygju í lífinu

„Við áttum ótrúlegar stundir saman og ég mun aldrei gleyma henni,“ sagði More meðal annars.

Ævi Sophie var ekki alltaf dans á rósum og varð hún fyrir grófri kynferðislegri misnotkun sem barn. Hún leiddist snemma út í neyslu eiturlyfja og áfengis og hóf feril sinn í klámmyndum árið 2017 þar sem hún naut talsverðra vinsælda.

Eiginmaður hennar, Oliver Spedding, lést sem fyrr segir í nóvembermánuði en hann þótti afar efnilegur knattspyrnumaður á sínum yngri árum. Kom hann upp í gegnum unglingastarf Crystal Palace sem spilar í ensku úrvalsdeildinni. Hann sneri sér síðar að klámbransanum eftir að hafa setið af sér fangelsisdóm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára

Barnastjarnan opnar sig um erfiðleika síðustu ára
Fókus
Í gær

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“

Bókin sem Fanney segir að allir ættu að lesa – „Hún fær fólk til að átta sig á hvað það raunverulega vill út úr lífinu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rýfur þögnina um samstarfið með Walton Goggins

Rýfur þögnina um samstarfið með Walton Goggins
Fókus
Fyrir 2 dögum

Versta martröð Victoriu Beckham orðin að veruleika

Versta martröð Victoriu Beckham orðin að veruleika
Fókus
Fyrir 3 dögum

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna

Manst þú eftir „fallegustu stúlku veraldar“? – Svona lítur hún út 14 árum seinna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala

Rihanna ólétt og frumsýndi kúluna fyrir Met Gala