fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Bæjaryfirvöld segja Vestmannaeyingum að vera við öllu búnir

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. nóvember 2023 11:43

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og greint var frá fyrr í morgun hefur Ríkislögreglustjóri lýst yfir hættustigi Almannavarna vegna mikilla skemmda á neysluvatnslögninni sem liggur til Vestmannaeyja.

Sjá einnig: Hættustigi lýst yfir vegna skemmda á neysluvatnslögn Vestmannaeyja

Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum segir að það komi auðvitað óþægilega við alla íbúa þegar þær aðstæður skapist að flytja þurfi bæinn á hættustig, en því fylgi reyndar líka ákveðið öryggi. Það þýði að almannavarnayfirvöld fylgist mjög náið með  stöðu mála og viðbragðsáætlanir verði til samræmis við þær aðstæður sem upp kunni að koma.  Bestu sérfræðingar hérlendis og erlendis séu komnir að málinu til að tryggja að vatnið haldi áfram að streyma til Eyja.

Leiðslan sé að skila fullu vatnsmagni en sé hins vegar mikið skemmd og því verði Vestmannaeyingar að vera búnir undir allar sviðsmyndir sem upp geti komið.  Bæjarbúar verði að sjálfsögðu upplýstir samstundis ef breyting verði á þessari stöðu og ef þeir þurfi að grípa til einhverra ráðstafana, en svo sé ekki á þessu stigi.

Unir tilkynninguna rita Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar ogEyþór Harðarson, bæjarfulltrúi.

Þau eru í vinnuhópi fyrir hönd bæjarstjórnar í þessu máli og munu starfa með almannavarnayfirvöldum, stjórnvöldum, HS veitum og öðrum sérfræðingum sem að málinu koma til að þessu ástandi megi linna sem allra fyrst.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit

Vilja reisa vonarvita fyrir Grindavík – Upplýsta Grindavíkur geit
Fréttir
Í gær

Sagði yfirmanninn hafa komið illa fram við sig og mismunað sér en var ekki nógu skýr

Sagði yfirmanninn hafa komið illa fram við sig og mismunað sér en var ekki nógu skýr
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“

Rúnar Hroði gefst ekki upp: „Ég ætla að fara með þetta alla leið“