fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
433Sport

Lögreglan búin að handtaka manninn sem varð bróður knattspyrnukonu að bana – Skotinn sex sinnum á eigin vinnustað

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 14. nóvember 2023 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er búið að finna morðingjann sem varð bróður knattspyrnukonunnar Jorelyn Carabali að bana.

Carabali er þekkt knattspyrnukona á Englandi en hún leikur með Brighton sem spilar í efstu deild.

Bróðir hennar var myrtur fyrr á þessu ári en hann var skotinn sex sinnum af morðingjanum og þá fjórum sinnum í andlitið.

Fórnarlambið bar nafnið Paulo Andres Carabali en hann var aðeins 23 ára gamall og var myrtur á skemmtistað í heimalandinu, Kólumbíu.

Lögreglan í Cali í Kólumbíu hefur nú handtekið mann sem er talinn hafa orðið Carabali að bana.

Carabali starfaði sem plötusnúður á þessum skemmtistað í Cali og var því myrtur á eigin vinnustað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram

Skoða það að semja við Antonio sem er staðráðinn í að halda áfram
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Forsetinn biðlar til Real Madrid