fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025
Fréttir

Uppfært Fleiri íbúar komast heim – Hluti Grindvíkinga fær að fara heim og sækja eigur sínar

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 13. nóvember 2023 10:08

Grindavík

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði sem er austan megin við Víkurbraut í Grindavík, að Ægisgötu.

Í tilkynningu kemur fram að Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn í Grindavík með skipulögðum hætti frá og með þessari stundu.

Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi:

Víkurhóp-Norðurhóp-Hópsbraut-Suðurhóp-Efrahóp-Austurhóp-Miðhóp-Stamphólsvegur-Víðigerði-Austurvegur-Mánagata-Mánasund-Mánagerði-Túngata-Arnarhlíð-Akur-Steinar

Fyrirtæki við: Hafnargötu-Seljabót-Miðgarð-Ránargötu-Ægisgötu (sunnan við Seljabót)-Garðsvegur-Verbraut-Víkurbraut- Hafnarsvæðið

Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall.Það þarf að koma um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fer fram upplýsingataka og skráning, ásamt því að fólk fær frekari leiðbeiningar. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn. 

Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. 

Til athugunar fyrir íbúana

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
  • Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
  • Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
  • Munið eftir húslykli
  • Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
  • Poka eða annað undir muni
  • Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
  • Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
  • Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
  • Heimilt verður að keyra ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu, út af svæðinu frá Grindavík, en eingöngu í fylgd viðbragðsaðila

Ítrekað er að þetta er ekki léttvæg ákvörðun. Þessu fylgir áhætta og því mjög mikilvægt að allir sem henni koma hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk sem verða sett.

Uppfært kl. 11:44:

Íbúar eftirfarandi svæða mega gefa sig fram á MÓT við Suðurstrandarveg kl. 13:00 í dag:

Skipastígur-Árnastígur-Glæsivellir-Ásvellir-Sólvellir-Blómsturvellir – Baðsvellir-Gerðavellir-Selsvellir-Litluvellir-Hólavellir-Höskuldavellir-Gerðavellir-Iðavellir-Efstahraun – Heiðarhraun -Hvassahraun -Staðarhraun – Borgarhraun -Arnarhraun-Víkurbraut.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld
Fréttir
Í gær

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“
Fréttir
Í gær

Leikskólastarfsmaður játaði líkamsárás gegn fjögurra ára barni – Þurfti að líma höfuðið saman

Leikskólastarfsmaður játaði líkamsárás gegn fjögurra ára barni – Þurfti að líma höfuðið saman
Fréttir
Í gær

Báru kennsl á byssumanninn á frægri ljósmynd með gervigreind – Nokkuð óvænt kom í ljós

Báru kennsl á byssumanninn á frægri ljósmynd með gervigreind – Nokkuð óvænt kom í ljós
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmæla Sundabraut harðlega – „Gufunes er ekki bara tómt landsvæði til að fylla af malbiki“

Mótmæla Sundabraut harðlega – „Gufunes er ekki bara tómt landsvæði til að fylla af malbiki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum