fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Krufning liggur fyrir vegna hundadauða á Austurlandi

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. september 2023 17:00

Katla, Anett, Alpha, Nome, Lupo, Lunatic, Nagli, Lúsía, Navi og Lágfóta fundust öll dauð sama daginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Askur Bárðdal Laufeyjarson, sem kom að tíu hundum sínum dauðum í sumar, hefur fengið niðurstöður krufningar. „Orsök dauða óþekkt“ var svarið sem hann fékk.

Það var laugardaginn 8. júlí sem Askur, sem starfar sem hundaþjálfari og býr á bænum Engihlíð í Norðurdal í Breiðdal, brá sér á bæjarhátíð í fimm klukkutíma. Tíu hundar, af tegundunum Husky og Border Collie, voru úti í gerði á meðan. Þegar Askur sneri til baka fann hann alla hundana dauða í gerðinu.

Tveir hundar voru kældir og sendir í krufningu á Rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands að Keldum og sýni voru send erlendis til eiturefnaprófunar. Þá var málið einnig kært til Lögreglunnar á Austurlandi.

Óvissan ömurleg

Nú liggur fyrir að krufning gat ekki sýnt fram á ástæðu hundadauðans.

„Þessi óvissa er ömurleg og sú staðreynd að ég geti ekkert gert til að minnka óvissuna enn verri,“ segir Askur í færslu á samfélagsmiðlum og segir frá því hvað hundarnir væru sennilega að gera í dag.

„Í dag er bjart og fallegt veður en kalt, sem sagt fullkomið veður fyrir langan túr með hundunum. Væri allt eins og það á að sér að vera væri ég með Lupo, Lunatic, Alpha, Nome of Lúsí örugglega með mér að njóta veðursins í 30 km hringnum „okkar“. Katla og Anett væru að þjálfa fyrir mót, Nagli og Navi að byrja í þjálfun og Lágfóta komin á heimili, en hún átti að hitta mögulega verðandi eigendur daginn eftir að hún dó,“ segir hann.

Í viðtali við Vísi í sumar sagðist Askur hafa fengið mismunandi svör frá dýralæknum um mögulega ástæðu dauða hundanna. Sumir nefndu eitrun sem hugsanlega ástæðu en aðrir rafmagn eða hugsanlega hitakast. Hann sagðist þó hafa gengið úr skugga um að hundarnir hefðu nægt vatn þennan dag og skugga.

Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, sagði að málið ætti sér engin fordæmi á Íslandi.

Langar í Husky hunda aftur

Askur segist hafa verið spurður hver næstu skref séu og að hann hafi fá svör við því. Hann hafi oft verið nálægt því að gefast upp. Hann langi hins vegar aftur í Husky hunda og er búinn að kaupa sér öryggismyndavél til þess að geta vaktað þá allan sólarhringinn.

„Stærsti gallinn er að ég þori því ekki, ég veit ekki hvað gerðist svo hvernig get ég spornað við því að það gerist aftur?“ segir Askur í færslunni. Þangað til mun hann einbeita sér að sportinu með öðrum tegundum, einkum Border Collie.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn