fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Nafn konunnar sem lést á Vopnafirði – „Hún var traustur liðsmaður“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 6. september 2023 14:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Violeta Mitul, 26 ára gömul knattspyrnukona, er sú sem lést af slysförum á Vopnafirði. Mitul lést í smábátahöfninni.

Mitul gekk í raðir Einherja fyrir tímabilið og lék með liðinu. Hún lék 18 leiki með liðinu í 2 deild kvenna í sumar og skoraði fjögur mörk.

Tilkynning Einherja:
„Það er með djúpri sorg í hjarta sem við tilkynnum um sviplegt fráfall leikmanns okkar, liðsfélaga og vinkonu, Violetu Mitul sem lést af slysförum aðfaranótt 4. september, aðeins 26 ára gömul. Samfélagið á Vopnafirði er harmi slegið.

Violeta, sem fæddist 3. apríl 1997 í Moldóvu, gekk til liðs við Einherja í vor og gegndi lykilhlutverki í liði meistaraflokks kvenna í sumar. Violeta var góðhjörtuð, dugleg og brosmild. Hún var traustur liðsmaður og fyrirmyndar fótboltakona. Andlát hennar er okkur öllum mikið áfall og skarðið sem hún skilur eftir sig stórt. Hugur okkar er hjá liðsfélögum hennar og þjálfurum sem syrgja traustan Einherja.

Fjölskyldu Violetu, þeim Alexandru, Mariu, Veaceslav og Juliu sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Á svo hörmulegri stundu eru engin orð eða gjörðir sem græða sárið sem missirinn skilur eftir sig en við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að létta undir með fjölskyldu og vinum sem eiga um sárt að binda á þessum sorgartímum.

Söfnunarreikningur fyrir fjölskyldu Violetu hefur verið stofnaður í nafni félagsins:

610678-0259

0178-05-000594

Ungmennafélagið Einherji“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“