Hjónin Katrín Halldóra Sigurðardóttir leik- og söngkona og Hallgrímur Jón Hallgrímsson trommari Sólstafa eignuðust sitt annað barn, dóttur, 5. júlí. Dóttirin kom í heiminn tíu dögum fyrir tímann á afmælisdegi stóra bróður síns, Stígs sem er þriggja ára. Hallgrímur á son frá fyrra sambandi.
Katrín Halldóra greinir frá fæðingu dótturinnar í færslu á Facebook. Sjálf á hún afmæli 4. Júlí.
„Hún er mætt! Fullkomin, 14 merkur og 50cm.“
Fleiri skemmtilegar tilviljanir eru tengdar fæðingunni því Katrín segir sömu ljósmóður hafa tekið á móti báðum börnunum.
„Og fleiri ótrúlegar tilviljanir, en hún Ragnheiður Reynis yndislega ljósmóðirin sem tók á móti Stíg var óvænt á vakt og tók líka á móti þessari dömu – í sömu fæðingarstofu nr. 9 – þann 5. júlí nákvæmlega þremur árum seinna! Ég veit ekki hvað er í gangi en ég held að þetta verði seint toppað.“