fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Besta deildin: Ótrúlegur sigur FH sem lenti þrisvar undir – Ægir Jarl hetja KR

Victor Pálsson
Sunnudaginn 28. maí 2023 21:09

Ægir Jarl skoraði í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór fram gríðarlega skemmtilegur leikur í Bestu deild karla í kvöld er FH og HK áttust við í níundu umferð.

Heil sjö mörk voru skoruð í þessum leik en HK tók forystuna þrisvar sinnum og svaraði FH í hvert sinn.

Úlfur Ágúst Björnsson átti frábæran leik fyrir FH og sá um að jafna metin í 2-2 og svo skora sigurmarkið í 4-3 sigri.

FH lyfti sér upp í fjórða sætið með sigrinum og er þremur stigum á undan HK sem er sæti neðar.

Þá áttust við KR og Stjarnan en spilað var í Vesturbænum og lauk þeim leik með sigri heimamanna.

Ægir Jarl Jónasson reyndist hetja KR-inga en hann skoraði eina markið í seinni hálfleik til að tryggja þriðja sigur ‘sumarsins.’

FH 4 – 3 HK
0-1 Jóhann Ægir Arnarsson(‘6, sjálfsmark)
1-1 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson(’12)
1-2 Arnþór Ari Atlason(’17)
2-2 Úlfur Ágúst Björnsson(’37)
2-3 Eyþór Aron Wöhler(’47)
3-3 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson(’58)
4-3 Úlfur Ágúst Björnsson(’71)

KR 1 – 0 Stjarnan
1-0 Ægir Jarl Jónasson(’79)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims