fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Besta deildin: Valsmenn raða inn mörkunum – Enn tapar KR

Victor Pálsson
Laugardaginn 13. maí 2023 18:06

Mynd: Valur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekkert lið jafn skemmtilegt og Valur í Bestu deild karla en liðið raðar inn mörkum í flestum sínum leikjum.

Valur heimsótti KA í sjöundu umferð deildarinnar í kvöld og var mun sterkari aðilinn á Akureyri.

Valsmenn skoruðu fjögur mörk og gerði Adam Ægir Pálsson tvö af þeim en hann hefur komið mjög sterkur inn.

Aron Jóhannsson og Andri Rúnar Bjarnason skoruðu einnig en Valur hefur nú gert 23 mörk í fyrstu sjö umferðunum.

Annar stórleikur fór fram í Vesturbænum þar sem KR tók á móti Breiðabliki en eitt mark var skorað.

Gísli Eyjólfsson tryggði Blikum þeirra 15. stig í sumar en KR er í fallsæti með fjögur stig eftir sjö leiki.

KA 0 – 4 Valur
0-1 Adam Ægir Pálsson(‘1)
0-2 Aron Jóhannsson(’29)
0-3 Andri Rúnar Bjarnason(’45)
0-4 Adam Ægir Pálsson(’90)

KR 0 – 1 Breiðablik
0-1 Gísli Eyjólfsson(’82)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur