fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu lygilega atburðarás í gær – Eftir að hafa hjólað í Messi á götum Parísar fór blóðheitur múgurinn á heimili annarrar stjörnu

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 4. maí 2023 07:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var gríðarlegt fjaðrafok í kringum Paris Saint-Germain í gær. Félagið og Lionel Messi fengu á baukinn frá stuðningsmönnum en einnig brasilíska stórstjarnan Neymar.

Messi var í vikunni settur í tveggja vikna bann af PSG. Hann hafði skrópað á æfingu og slakað á í Sádi-Arabíu. Christophe Galtier, þjálfari liðsins, hefur viljað taka á agavandamálum félagsins og að setja Messi í bann er hluti af því.

Galtier hafði boðað frí frá æfingu á mánudag en tap gegn Lorient varð til þess að hann setti á æfingu, þá var Messi í Sádí Arabíu og komst ekki til baka. Talið er að Argentínumaðurinn gæti þénað yfir þrjá milljarða á ári fyrir að auglýsa Sádi-Arabíu. Inni í samningi hans við landið er ferð þangað að minnsta kosti einu sinni á ári.

Í kjölfar fregna af banninu var greint frá því að Messi færi frá PSG í sumar. Samningur hans er að renna út og vill hvorugur aðili framlengja samstarfið.

Stuðningsmenn PSG voru mættir fyrir utan höfuðstöðvar félagsins í gær og fékk Messi að heyra það. „Messi er tíkarsonur,“ var á meðal þess sem var sungið.

Argentínumaðurinn var þó ekki sá eini sem fékk á baukinn. Hópur blóðheitra stuðningsmanna fór fyrir utan heimili Neymar. Sungu þeir meðal annars: „Drullaðu þér burt Neymar.“

PSG gerði Brasilíumanninn að dýrasta leikmanni heims þegar hann var keyptur frá Barcelona á 198 milljónir punda 2017. Hann hefur hins vegar ekki alveg staðið undir væntingum í borg ástarinnar.

Franska stórveldið fordæmdi hegðun stuðningsmanna í gær í yfirlýsingu. „Paris Saint-Germain fordæmir harðlega ólíðandi hegðun lítils hóps fólks á miðvikudag. Sama hversu ósammála menn eru er ekki hægt að réttlæta svona lagað. Félagið styður leikmenn sína af heilum hug, sem og þjálfara og alla sem svona hegðun hefur áhrif á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug