fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Þénaði 8,5 milljónir á viku en er nú gjaldþrota

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 21. apríl 2023 07:44

Wes Brown. Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Wes Brown hefur verið úrskurðaður gjaldþrota.

Brown er 43 ára gamall og lék fyrir aðallið Manchester United í fimmtán ár á knattspyrnuferli sínum.

Varnarmaðurinn var til að mynda hluti af gullaldarliði Sir Alex Ferguson.

Brown þénaði lengi vel því sem nemur 8,5 milljónum íslenskra króna á viku Old Trafford.

Nú hefur hann hins vegar verið úrskurðaður gjaldþrota fyrir rétti.

Brown lék alls 362 leiki fyrir United og náði frábærum árangri. Kappinn er með fimm Englandsmeistaratitla, tvo Evrópumeistaratitla, tvo bikarmeistaratitla og tvo deildarbikarmeistaratitla á bakinu.

Þá á Brown að baki 23 A-landsleiki fyrir Englands hönd.

Brown er sagður hafa átt erfitt frá því hann skildi við eiginkonu sína til þrettán ára í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi og varð alveg kolbrjálaður – Sjáðu myndbandið

Missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi og varð alveg kolbrjálaður – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Chelsea mætir Real eða PSG

Chelsea mætir Real eða PSG
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Verið aðdáandi Pogba síðan hann var krakki og fær nú að spila með honum

Verið aðdáandi Pogba síðan hann var krakki og fær nú að spila með honum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Andy Carroll gæti tekið óvænt skref

Andy Carroll gæti tekið óvænt skref
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár