fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu svakalega vörslu Ramsdale í blálokin gegn Liverpool – Konate í dauðafæri

Victor Pálsson
Sunnudaginn 9. apríl 2023 17:34

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal var nálægt því að stíga risastórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum í dag er liðið mætti Liverpool á útivelli.

Um var að ræða ansi fjörugan leik en Arsenal tók forystuna eftir aðeins átta mínútur er Gabriel Martinelli skoraði.

Staðan var orðin 2-0 eftir 28 mínútur en Brasilíumaðurinn Gabriel Jesus bætti þá við öðru marki gestanna.

Mohamed Salah lagaði stöðuna fyrir Liverpool undir lok fyrri hálfleiks og gat svo jafnað metin undir byrjun þess seinni.

Salah fékk þá tækifæri á vítapunktinum en setti boltann framhjá og náði ekki að jafna stöðuna.

Arsenal hélt þessari forystu í dágóðan tíma en þegar fjórar mínútur voru eftir jafnaði Roberto Firmino metin með góðu skallamarki.

Stuttu eftir það gat Ibrahima Konate komið Liverpool yfir en Aaron Ramsdale í marki Arsenal bauð upp á magnaða vörslu til að bjarga stiginu eins og má sjá hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn