fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vonsvikinn Mbappe vill lítið gefa upp um framtíð sína

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 9. mars 2023 11:30

Kylian Mbappe t.v..

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kylian Mbappe var spurður út í framtíð sína eftir að Paris Saint-Germain féll úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu enn eitt árið.

Franska liðið tapaði 2-0 gegn Bayern Munchen í gær og einvíginu samanlagt 3-0.

Mbappe hefur lengi verið orðaður frá PSG og þá einna helst við Real Madrid.

„Ég er rólegur. Það eina sem skiptir mig máli núna er að vinna frönsku deildina með PSG. Svo sjáum við til,“ segir hann.

„Eins og er vil ég bara tala um þetta tímabil. Ekkert annað skiptir máli. Við erum virkilega vonsviknir.“

Jamie Carragher sagði á CBS Sports í gær að Mbappe þyrfti að fara annað.

„Ég er mjög ánægður með að PSG sé dottið út. Mér líkar ekki við hvernig þetta er byggt upp. Þetta er ekki lið.

Í fimm ár af síðustu sjö hafa þeir dottið út í 16-liða úrslitum. Þeir eyða meiri pening en nokkur annar og eru með bestu leikmenn í heimi.

Þetta er sýnir hversu mikilvægt er að vera lið. Við elskum einstaklinga innan liðs en þetta er ekki lið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug