fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Liverpool niðurlægði Manchester United á Anfield – Sækja nú fast að Meistaradeildarsæti

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 5. mars 2023 18:21

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liver­pool valtaði yfir erki­fjendur sína í Manchester United í stór­leik dagsins í ensku úr­vals­deildinni. Loka­tölur á Anfi­eld í Liver­pool, 7-0.

Það var Hollendingurinn ungi, Cody Gak­po sem kom Liver­pool yfir með hnit­miðuðu og góðu skoti á 43. mínútu við mikil fagnaðar­læti við­staddra á Anfi­eld, heima­velli Liver­pool.

Það reyndist eina mark fyrri hálf­leiksins.

Heima­menn voru ekki lengir að stimpla sig inn í seinni hálf­leikinn því strax á 47. mínútu barst boltinn til Darwin Nu­nez sem skallaði hann í netið af stuttu færi, kom Liver­pool tveimur mörkum yfir og skoraði um leið sitt 7 mark á tíma­bilinu í ensku úr­vals­deildinni.

Það tók Liver­pool svo að­eins þrjár mínútur til við­bótar til þess að gera út um leikinn. Heima­menn unnu boltann á sínum vallar­helmingi, komu boltanum fljótt út á hægri kant á Mohamed Salah sem átti sprett upp kantinn og kom boltanum síðan á Cody Gak­po sem lyfti boltanum snyrti­lega yfir David de Gea í markinu.

Heima­menn voru hins vegar ekki hættir og héldu á­fram að láta finna fyrir sér. Á 66. mínútu bætti Mohamed Salah við fjórða marki liðsins eftir enn eina skyndi­sóknina.

Niður­læging Manchester United var full­komnuð á 76. mínútu þegar að Darwin Nu­nez reis hæst í teignum og skallaði boltann í netið, hans annað mark í leiknum. Staðan orðin 5-0.

Það var þó nægur tími fyrir Liver­pool til þess að bæta við marki. Sjötta markið kom á 83. mínútu og það skoraði Mohamed Salah.

Vara­maðurinn Rober­to Firmino hóf síðan loka­mánuði sína í treyju Liver­pool með því að bæta við sjöunda marki Liver­pool á 89. mínútu.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. Sigur Liver­pool lyftir þeim upp í 5. sæti ensku úr­vals­deildarinnar þar sem liðið er með 42 stig, þremur stigum á eftir Totten­ham sem situr í 4. sæti.

Manchester United er síðan í 3. sæti með 49 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur