fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Chelsea færir sig upp á skaftið – Virðist raunverulegur möguleiki á að félagið steli Mudryk

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. janúar 2023 09:47

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea virðist vera að færa sig upp á skaftið í kapphlaupinu um Mykhaylo Mudryk hjá Shakhtar Donetsk.

Hinn 21 árs gamli Mudryk hefur verið sterklega orðaður við Arsenal undanfarið. Félagið leitar að liðsauka í sóknarlínu sína en Úkraínumaðurinn spilar úti á kanti.

Darijo Srna, yfirmaður knattspyrnumála hjá Shakhtar, verður staddur á leik Chelsea gegn Manchester City á morgun. Það er vísbending um að Bláliðar ætli sér að taka þátt í baráttunni um Mudryk af alvöru.

Chelsea ætlar að ræða við Shakhtar á næsta sólarhringnum.

Arsenal er hins vegar enn fyrsti kostur Mudryk. Shakhtar hafnaði tilboði félagsins á dögunum og á enn eftir að svara öðru.

Mudryk heillaði mikið með Shakhtar í Meistaradeild Evrópu fyrir áramót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“