fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Afar óvænt tíðindi – Manchester United og fleiri stórlið hafa áhuga á Pickford

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. desember 2022 09:43

Jordan Pickford

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framtíð Jordan Pickford hjá Everton er skyndilega í nokkurri óvissu. Hefur það vakið áhuga stórliða á Englandi. Daily Mail segir frá.

Fyrir Heimsmeistaramótið í Katar samþykkti þessi landsliðsmarkvörður Englands nýjan fimm ára samning. Félagið á hins vegar enn eftir að ganga frá þeim samningi.

Þetta hangs gæti reynst Everton dýrkeypt, en Pickford á 18 mánuði eftir af samningi sínum við félagið.

Stórliðin Chelsea, Manchester United og Tottenham eru öll sögð hafa áhuga á Pickford og fylgjast með stöðunni.

Chelsea hefur verið í vandræðum með markvarðastöðu sína undanfarin ár. Þá er framtíð David De Gea hjá United í óvissu, en samningur hans rennur út í sumar.

Loks leitar Tottenham að arftaka hins 36 ára gamla Hugo Lloris í markinu.

Pickford hefur verið á mála hjá Everton síðan 2017. Hann kom frá Sunderland á 30 milljónir punda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn