

Það er búið að draga í næstu umferð enska deildabikarsins og er ljóst hvaða lið mætast.
Manchester United vann Burnley í sínum leik í 8-liða úrslitum og spilar við Charlton á heimavelli.
Manchester City sló Liverpool úr leik í kvöld og fær aðeins auðveldara verkefni gegn Southampton.
Nottingham Forest mætir þá Wolves og Newcastle spilar við Leicester City en öll þessi lið spila í efstu deild fyrir utan Charlton.
8-liða úrslit deildabikarsins:
Manchester United – Charlton
Southampton – Manchester City
Nottingham Forest – Wolves
Newcastle United – Leicester City