fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ódýrasti kosturinn er að halda í De Gea – United er að skoða markvarðarmál sín

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. desember 2022 08:29

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

The Athletic skrifar langa grein um stöðu David De Gea hjá Manchester United og mögulega framlengingu á samningi hans.

De Gea vill ólmur framlengja dvöl sína hjá United en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.

United hefur nýtt ákvæði í samningum við flesta til að framlengja út tímabilið 2024 en ekki hjá De Gea.

Til umræðu er að Dea Gea geri nýjan samning en á miklu lægri launum en hann er núna. De Gea er launahæsti markvörður í heimi með 375 þúsund pund á viku þegar United er í Meistaradeildinni.

The Athletic segir að helmingi lægri laun eða í kringum 200 þúsund pundin komi til greina hjá báðum aðilum.

De Gea hefur hins vegar ekki alla þá kosti sem Erik ten Hag vill og því er verið að skoða aðra markverði. Þannig er Diogo Costa markvörður Porto og Unai Simon markvörður Athletic Bilabao til skoðunar.

Tony Coton sem sér um að skoða markverði fyrir félagið er á fullu að skoða markaðinn. Ódýrasta lausnin væri hins vegar að halda í De Gea þar sem ekkert kaupverð yrði í spilinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn