
Samkvæmt nýjum fréttum frá Englandi á Manchester United á hættu að missa af aðalskotamarki sínu Cody Gakpo.
Mirror segir frá því að Real Madrid hafi nú mikinn áhuga á Gakpo í kjölfar frammistöðu hans á Heimsmeistaramótinu í Katar með hollenska landsliðinu.
Hinn 23 ára gamli Gakpo skoraði þrjú mörk í fimm leikjum á HM.
Sóknarmaðurinn er á mála hjá PSV í heimalandinu. Tölfræði hans þar á þessu tímabili er hreint ótrúleg. Gakpo hefur skorað níu mörk og lagt upp tólf í fjórtán leikjum í hollensku deildinni.
Rúmar tvær vikur eru í að janúarglugginn opni og ljóst er að United vill bæta við sig sóknarmanni. Samningi Cristiano Ronaldo var rift á dögunum í kjölfar þess að hann fór í umdeilt viðtal við Piers Morgan.
Enska úrvalsdeildin hefst á ný annan í jólum. Þar er United í fimmta sæti.