

Í Argentínu er mikið rætt og ritað um heilsu Lionel Messi þessa dagana. Úrslitaleikurinn á HM í Katar fer fram eftir tvo daga.
Allir leikmenn Argentínu sem byrjuðu í undanúrslitum fengu frí á æfingu í gær og Messi var þar á meðal.
Messi er hins vegar að glíma við meiðsli í kálfa og mátti sjá hann í undanúrslitunum gegn Króatíu kveinka sér undan því.
Messi spilaði hins vegar allan leikinn, það eru því allar líkur á því að þessi magnaði knattspyrnumaður verði klár í slaginn á sunnudag.
Fólk í Argentínu óttast hins vegar að Messi sé hálf meiddur og ekkert megi út af bregða svo hann hreinlega missi af úrslitaleiknum eða að hann geti ekki beitt sé að fullum krafti.