
Emmanuel Macron Frakklandsforseti virðist mikill aðdáandi Sofyan Amrabat, miðjumanns marokkóska landsliðsins.
Marokkó datt úr leik í gær í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í Katar eftir tap gegn Frökkum. Liðið getur þó vel við unað, enda sýnt frábæran árangur á mótinu.
Varð það til að mynda fyrsta afríska landið til að komast í undanúrslit HM.
Frakkar unnu leikinn í gær 2-0. Mörkin skoruðu þeir Theo Hernandez og Randal Kolo Muani.
Macron var á staðnum og eftir leik fór hann inn í klefa Marokkó og tjáði Amrabat það að hann teldi hann hafa verið besta miðjumanninn á HM í Katar.
Amrabat er leikmaður Fiorentina á Ítalíu. Það er spurning hvort hann fari í stærra lið eftir frammistöðu sína í Katar.