
24 ára gamall öryggisvörður sem hefur verið við störf á Heimsmeistaramótinu í Katar er látinn. Dánarorsökin er hátt fall sem hann hlaut er hann starfaði á leik Hollands og Argentínu í 8-liða úrslitum mótsins á föstudagskvöld.
The Athletic greinir frá þessum sorgarfregnum.
Maðurinn hét John Njau Kibue kom frá Kenýa. Hann féll úr hárri hæð á Lusail-vellinum í Katar.
Eftir fallið var kibue fluttur á sjúkrahús en hann lést af sárum sínum í gær.
„Bráðaliðar á vellinum hlúðu strax að honum áður en hann var færður á bráðamóttöku Hamad-spítalans með sjúkrabíl. Okkur þykir leitt að þrátt fyrir tilraunir læknaliðsins lést hann þriðjudaginn 13. desember. Hans nánustu ættingjar hafa verið látnir vita,“ segir í yfirlýsingu mótsnefndar.
„Hugur okkar er hjá fjölslkyldu hans, vinum og vinnufélögum á þessum erfiðu tímu. Mótshaldarar eru að rannsaka kringumstæðurnar og hvað það var sem leiddi til fallsins. Við sjáum til þess að fjölskylda hans fái allt það sem hann átti inni.“
Sjá einnig:
Bráðkvaddur í Katar í gær – Hafði vakið athygli þegar hann mætti í bol til stuðnings hinsegin fólks