fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu myndbandið: Ótrúlega fallegt augnablik er fréttakonan tjáði tilfinningar sínar gagnvart Messi í viðtali

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. desember 2022 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lionel Messi var í hjartnæmu viðtali við argentíska fréttakonu eftir sigur Argentínu á Króatíu í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í Katar í gær.

Hinn 35 ára gamli Messi átti frábæran leik í gær en Argentínumenn unnu leikinn 3-0. Messi skoraði fyrsta mark Argentínu af vítapunktinum og lagði svo upp þriðja mark liðsins eftir stórkostleg tilþrif.

Argentínumenn mæta annað hvort Frakklandi eða Marokkó í úrslitaleiknum á sunnudag. Þau mætast einmitt í kvöld í hinum undanúrslitaleiknum.

Í viðtalinu tjáði fréttakonan Messi að sama hvernig úrslitaleikurinn færi ætti hann að vita hversu mikið hann hefur gert fyrir alla argentísku þjóðina. Hún sagði kappann hafa haft áhirf á líf allra í landinu.

Messi brosti hringinn eftir ummælin, en myndbrot af viðtalinu er hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“