fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Rooney með nýjasta höggið í stríðinu við Ronaldo

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 14. desember 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United-goðsögnin Wayne Rooney hrósaði Lionel Messi eftir frábæra frammistöðu kappans í sigri Argentínu á Króatíu í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í Katar í gær.

Hinn 35 ára gamli Messi skoraði fyrsta mark Argentínu af vítapunktinum og lagði svo upp þriðja mark liðsins eftir stórkostleg tilþrif.

Argentínumenn mæta annað hvort Frakklandi eða Marokkó í úrslitaleiknum á sunnudag. Þau mætast einmitt í kvöld í hinum undanúrslitaleiknum.

Rooney rifjaði upp gamla færslu sína á Twitter eftir leik í gær. „Messi er brandari. Sá besti í sögunni,“ skrifaði Rooney árið 2012.

Hann rifjaði færsluna upp í gær og skrifaði: „Ekkert hefur breyst.“

Einhverjir myndu segja að þetta séu kaldar kveðjur á gamla vin Rooney, Cristiano Ronaldo. Þeir félagar léku um árabil saman hjá United.

Þeir hafa þó átt í einhverju stappi frá því Ronaldo fór í umdeilt viðtal við Piers Morgan á dögunum. Þar benti Portúgalinn á að hann liti mun betur út en Rooney þrátt fyrir að þeir séu jafnaldrar.

Rooney er í dag þjálfari DC United í MLS-deildinni vestanhafs. Ronaldo er án félags eftir að hafa rift samningi sínum við United í kjölfar viðtalsins við Morgan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug