fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
433Sport

Adda dýrkar nýtt hlutverk sitt á RÚV – Gaman að pæla dýpra í hlutunum

433
Laugardaginn 29. október 2022 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrrum leikmaður Vals og nú þjálfari hjá félaginu var gestur í Íþróttavikunni með Benna Bó á föstudagskvöld en með henni í setti var Hörður Snævar Jónsson, fréttastjóri íþrótta á Torgi.

Ásgerður ákvað á dögunum að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril en hún lék á ferlinum 10 A-landsleiki. Hún hefur á undanförnum mánuðum slegið í gegn í sjónvarpi.

Adda var sérfræðingur í kringum Evrópumótið hjá körlum í fyrra og Evrópumót kvenna í ár. Þá hefur komið fram að hún verði á meðal sérfræðinga RÚV á HM í Katar.

„Þetta er skemmtilegt, mér finnst gaman að pæla dýpra í fótbolta en bara að horfa á hann,“ segir Adda eins og hún er alltaf kölluð.

„Það er gaman að vera í þessu teymi hjá RÚV, skemmtilegur hópur. Það er skemmtilegt að horfa á þetta.“

Komið hefur fram að Adda, Margrét Lára Viðarsdóttir, Heimir Hallgrímsson, Ólafur Kristjánsson og Arnar Gunnlaugsson verði sérfræðingar RÚV í kringum HM.

Umræðuna má horfa á hér að neðan.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Íslenskt teymi í Belfast

Íslenskt teymi í Belfast
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Framherjinn eftirsótti hafnaði gylliboði frá Rússlandi

Framherjinn eftirsótti hafnaði gylliboði frá Rússlandi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal biðlar til ensku úrvalsdeildarinnar

Arsenal biðlar til ensku úrvalsdeildarinnar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“

Valtý heitt í hamsi og spyr hvort Íslendingar telji sig öðrum fremri – „Maður er búinn að heyra þessa skýringu allt of oft“
Hide picture