fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Þungur dómur – Víkingur má ekki spila næsta leik á heimavelli

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 12. október 2022 16:16

Víkingur er ríkjandi bikarmeistari. Mynd: Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ þann 11. október 2022 var tekin fyrir skýrsla frá eftirlitsmanni KSÍ á úrslitaleik FH og Víkings R. í bikarkeppni meistaraflokks karla, sem fram fór á Laugardalsvelli þann 1. október síðastliðinn. Í samræmi við ákvæði 5.1.1. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál úrskurðar nefndin m.a. um þau atriði, sem fram koma í atvikaskýrslum eftirlitsmanna KSÍ.

Hegðun stuðningsmanna komst í fréttir en björgunarsveitin átti í stökustu vandræðum með að halda ró á hlutunum. Þannig hljóp sami stuðningsmaður Víkings í tvígang inn á völlinn.

KSÍ sætir sekt að upphæð kr. 200.000, FH sætir sekt að upphæð kr. 50.000 og Víkingur sætir sekt að upphæð kr. 200.000 auk heimaleikjabanns í einn (1) leik í keppnum á vegum KSÍ. Sjá nánar í niðurstöðum hér að neðan.

Samkvæmt grein 16.3 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál er frestur til að áfrýja máli til áfrýjunardómstóls KSÍ 3 dagar frá því að úrskurður aga- og úrskurðarnefndar er kveðinn upp og skulu almennir frídagar ekki taldir með.

Niðurstaða varðandi KSÍ:

Það er mat aga- og úrskurðarnefndar að þau atvik sem lýst er í skýrslu eftirlitsmanns í framangreindum bikarúrslitaleik og varða að mestu framkomu áhorfenda og stuðningsfólks, hafi verið vítaverð og hættuleg gagnvart leikmönnum, dómurum, þjálfurum og öðrum. Að mati nefndarinnar er það ljóst að viðeigandi aðildarfélög skuli bera ábyrgð á framkomu félagsmanna og stuðningsmanna sinna vegna ámælisverðrar eða óásættanlegrar framkomu þessara aðila innan vébanda KSÍ, sbr. grein 5.10. laga KSÍ. Hins vegar þá geti félögin ein ekki borið ábyrgð á að öryggi og regla sé tryggð á Laugardalsvelli fyrir leik, á meðan leik stendur og eftir leik enda framkvæmd leiksins í höndum KSÍ. Sé öryggi og regla ekki tryggð þá beri KSÍ, sem framkvæmdaraðili leiksins, ábyrgð í samræmi við fyrrnefnda grein 23.3.7. í reglugerð um knattspyrnumót. Það á við nema sýnt sé fram á að skipulagning og framkvæmd leiks hafi ekki á nokkurn hátt verið gáleysisleg. Er það í samræmi við 1. mgr. 16. gr. agareglna FIFA.

Að virtri greinargerð Knattspyrnusambands Íslands og öðrum fyrirliggjandi gögnum er það álit nefndarinnar að við framkvæmd úrslitaleiks bikarkeppninnar hafi öryggi og regla ekki verið tryggð. Sérstaklega hafi öryggi leikmanna, dómara, þjálfara, áhorfenda og annarra ekki verið nægilega tryggt fyrir leik, á meðan leik stóð og eftir að leik lauk. Er það jafnframt mat nefndarinnar að KSÍ sem framkvæmdaraðila leiksins hafi ekki tekist að sýna fram á að skipulagning og framkvæmd leiks hafi ekki á nokkurn hátt verið gáleysisleg.

Með vísan til þess ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að sekta Knattspyrnusamband Íslands vegna atvika sem lýst er í skýrslu eftirlitsmanns í bikarúrslitaleik FH og Víkings R. þann 1. október 2022. Með tilliti til fjölda þeirra hættulegu atvika sem lýst er í skýrslu eftirlitsmanns og vörðuðu öryggi og reglu á Laugardalsvelli þá þykir nefndinni hæfilegt að sekta Knattspyrnusamband Íslands um kr. 200.000,-.

Niðurstaða varðandi FH:

Að virtri greinargerð knattspyrnudeildar FH og öðrum fyrirliggjandi gögnum er það álit nefndarinnar að framkoma áhorfenda og stuðningsfólks FH í framangreindum leik FH og Víkings R. hafi verið vítaverð og hættuleg. Að mati nefndarinnar sé það ljóst að sérhvert aðildarfélag skuli bera ábyrgð á framkomu félagsmanna og stuðningsmanna sinna vegna ámælisverðrar eða óásættanlegrar framkomu þessara aðila innan vébanda KSÍ, og getur sætt viðurlögum sem nánar er kveðið á um í lögum þessum og reglugerðum KSÍ, sbr. grein 5.10. laga KSÍ. Framkoma áhorfenda FH í bikarúrslitaleik liðsins gegn Víkingi falli undir ákvæði 12.9.d. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál.

Þá vísar nefndin einnig til c) liðar 2. mgr. 16. gr. agareglna FIFA en í samræmi við grein 23.2. eru agareglur FIFA (FIFA Disciplinary Code) ákvæðum reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál til fyllingar, eftir því sem við á.

Með vísan til framangreinds ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að sekta Knattspyrnudeild FH vegna framkomu áhorfenda félagsins í leik liðsins við Víking R. þann 1. október 2022. Þykir nefndinni upphæð sektar knattspyrnudeildar FH hæfilega ákveðin kr. 50.000,-.

Niðurstaða varðandi Víking R:

Að virtri greinargerð knattspyrnudeildar Víkings R. og öðrum fyrirliggjandi gögnum er það álit nefndarinnar að framkoma áhorfenda og stuðningsfólks Víkings R. í framangreindum leik FH og Víkings R. hafi verið vítaverð og hættuleg gagnvart leikmönnum, dómurum, þjálfurum og öðrum. Að mati nefndarinnar sé það ljóst að sérhvert aðildarfélag skuli bera ábyrgð á framkomu félagsmanna og stuðningsmanna sinna vegna ámælisverðrar eða óásættanlegrar framkomu þessara aðila innan vébanda KSÍ, og getur sætt viðurlögum sem nánar er kveðið á um í lögum þessum og reglugerðum KSÍ, sbr. grein 5.10. laga KSÍ. Framkoma áhorfenda Víkings R. í bikarúrslitaleik liðsins gegn FH falli ótvírætt undir ákvæði 12.9.d. í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál.

Með vísan til framangreinds ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að sekta Knattspyrnudeild Víkings R. vegna framkomu áhorfenda félagsins í leik liðsins við FH þann 1. október 2022. Með tilliti til fjölda þeirra vítaverðu og hættulegu atvika sem lýst er í skýrslu eftirlitsmanns og varða áhorfendur Víkings R. þykir nefndinni rétt að sekta knattspyrnudeild Víkings R. um kr. 200.000,- sem er hámarkssekt samkvæmt grein 12.9.d. Jafnframt er það mat aga- og úrskurðarnefndar, í ljósi alvarleika þeirra brota sem lýst er í skýrslu eftirlitsmanns, að rétt sé að úrskurða knattspyrnulið Víkings R. í mfl. karla í heimaleikjabann sem nemur 1 leik í keppnum á vegum KSÍ. Þannig verði knattspyrnuliði félagsins í mfl. karla gert að leika næsta heimaleik sinn í keppnum á vegum KSÍ á hlutlausum velli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Útsendarar United og Tottenham tóku út Cristiano Jr í gær

Útsendarar United og Tottenham tóku út Cristiano Jr í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gætu keypt leikmann andstæðingsins beint eftir úrslitaleikinn

Gætu keypt leikmann andstæðingsins beint eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sunderland á Wembley eftir ótrúlega dramatík

Sunderland á Wembley eftir ótrúlega dramatík
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd
433Sport
Í gær

Íslendingar á ferð og flugi – Sævar til Noregs og Logi líklega til Tyrklands á 130 kúlur

Íslendingar á ferð og flugi – Sævar til Noregs og Logi líklega til Tyrklands á 130 kúlur
433Sport
Í gær

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar