fbpx
Föstudagur 12.september 2025
433Sport

Úr réttarsal í dag – Sagðist vera með lítið typpi og entist í 20 sekúndur

433
Miðvikudaginn 24. ágúst 2022 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Réttarhöldin yfir Benjamin Mendy, sem er á mála hjá Manchester City, halda áfram.

Mendy er sakaður um átta nauðganir, eitt kynferðisbrot og eina tilraun til nauðgunar. Atvikin eiga að hafa átt sér stað frá október 2018 til ágúst 2021.

Einnig er réttað yfir vini Mendy, Louis Saha Matturie. Sá er sakaður um átta nauðganir og fjögur kynferðisbrot. Alls eru þrettán konur sem tengjast brotum þeirra félaga.

Í dag fékk kviðdómur að heyra sögu einnar konu sem sakar Mendy um nauðgun af lögregluupptöku. Konan segist hafa hitt Mendy í júlí á síðasta ári. Var henni svo boðið heim til hans.

Þau fóru í sund og kysstust áður en hann girti buxurnar niður um sig. „Hann sagði að allar konurnar þarna vildu sofa hjá honum. Ég sagði bara allt í lagi. Ég held að hann hafi sagt þetta svo mig langaði að gera eitthvað með honum,“ segir konan.

„Ég sagði að ég myndi ekki gera neitt svoleiðis með honum og þurfti að afsaka það. Þetta var eins og að rífast við vegg.“

Konunni langaði ekkert til að stunda kynlíf með Mendy. Hún hafði til dæmis áhyggjur af því að meiða sig. „Hann sagði „það er lítið.“ Ég sagði honum að hann væri ekki að auka líkurnar sínar með því að segja það.“

„Við enduðum á að stunda kynlíf. Það entist heldur ekki lengi, eftir 20 sekúndur var því lokið. Mér leið eins og ég væri skítug eftir á.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Keane ræðir um starf Heimis: Talar um farsa þegar hann var ráðinn – „Gætu ekki skipulagt gleðskap í brugghúsi“

Keane ræðir um starf Heimis: Talar um farsa þegar hann var ráðinn – „Gætu ekki skipulagt gleðskap í brugghúsi“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Lögreglan í London á nálum fyrir helginni – Fjöldi fótboltaleikja og tvö stór mótmæli

Lögreglan í London á nálum fyrir helginni – Fjöldi fótboltaleikja og tvö stór mótmæli
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

LIðsfélagi Gyökeres fer yfir það hvernig hann er – „Algjört skrímsli“

LIðsfélagi Gyökeres fer yfir það hvernig hann er – „Algjört skrímsli“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hæstiréttur hafnar beiðni KA sem þarf að taka upp veskið og borga Arnari

Hæstiréttur hafnar beiðni KA sem þarf að taka upp veskið og borga Arnari
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal sagt tilbúið að selja tvo sóknarmenn í janúar

Arsenal sagt tilbúið að selja tvo sóknarmenn í janúar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segja Reykjarvíkurborg þrengja að íþróttasvæði í Laugardalnum

Segja Reykjarvíkurborg þrengja að íþróttasvæði í Laugardalnum
433Sport
Í gær

Áfall hjá City fyrir stórleik helgarinnar

Áfall hjá City fyrir stórleik helgarinnar
433Sport
Í gær

Framkvæmdir ganga hægt hjá Barcelona – Þurfa að fresta því að spila á heimavelli

Framkvæmdir ganga hægt hjá Barcelona – Þurfa að fresta því að spila á heimavelli