fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þénað yfir 80 milljónir á OnlyFans – Rekin úr fyrra starfi fyrir kynlífsmyndband og drykkju undir stýri

433
Mánudaginn 25. júlí 2022 09:11

Myndir: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnukonan Madelene Wright hefur þénað um 82 milljónir íslenskra króna frá því hún byrjaði á OnlyFans snemma á síðasta ári.

OnlyFans er miðill sem gerir notendum kleift að selja efni sitt til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Klámstjörnur eru vinsælar á miðlinum en einnig áhrifavaldar sem selja djarfar myndir af sér. Aðdáendur geta einnig sent notendum skilaboð og lagt fram beiðni um myndefni gegn gjaldi. Það er hægt að græða á tá og fingri.

Wright stofnaði OnlyFans eftir að hafa verið rekin frá félagi sínu, Charlton Athletic.

Þessi 22 ára knattspyrnukona hafði deilt myndböndum af sér að taka inn hláturgas, sem er ekki vel liðið innan fótboltans. Annað myndband fór í umferð af henni að drekka áfengi á meðan hún brunaði áfram á bifreið sinni. Þriðja myndbandið sýndi svo Madelene stunda kynlíf á meðan hún talaði í símann. Charlton rak stúlkuna frá félaginu vegna þessara myndbanda.

Wright sagðist á dögunum sjá eftir gjörðum sínum. „Ég var ung og að fíflast með vinum mínum. Ég skildi ekki stöðuna sem ég var í og þá ábyrgð sem ég bar.“

„Ég elskaði Charlton, þjálfaranna, liðsfélaga. Þetta braut mig alveg niður.“

Endirinn á knattspyrnuferlinum, í bili, opnaði hins vegar á OnlyFans-ferilinn. „Þetta opnaði aðrar dyr. Þetta gerðist hratt. “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug