fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Góðvinur Ronaldo telur hann vera búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Man Utd

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. júlí 2022 13:00

Georgina Rodriguez og Cristiano Ronaldo / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn umdeildi, Piers Morgan, telur ólíklegt að Cristiano Ronaldo verði áfram hjá Manchester United eftir sumarið.

Ronaldo vill komast frá Manchester United. Hann sneri aftur til félagsins í fyrra, tólf árum eftir að hann yfirgaf það fyrir Real Madrid. Sjálfur átti Portúgalinn fínasta tímabil en Man Utd hafnaði hins vegar í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Ronaldo fór ekki með Man Utd í æfingaferð til Asíu á dögunum. Sagt er að það sé af fjölskylduástæðum, þó það megi draga það í efa í ljósi sögusagna um framtíð leikmannsins.

„Ég held að hann sé farinn í huganum,“ segir Piers. „Ég ætla ekki að segja hvað hefur farið fram okkar á milli en ég held að Cristiano og Manchester United deili ekki sama metnaði.“

„Ef maður væri hann, væri að nálgast lok ferilins en langaði enn að vinna stóra titla, myndi maður vera áfram hjá United?“

„Það er hans að svara því en ef þú spyrð mig held ég að hann verði ekki áfram hjá Manchester United. Ég held að hann gæti tekið óvænt skref.“

Piers er mikill stuðningsmaður Arsenal. „Ég er að gera allt sem ég get til að fá hann til Arsenal,“ segir hann léttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Í gær

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims