fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Arsenal vill miðjumann Lyon – Heimta yfir ellefu milljarða

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 12. júlí 2022 17:00

Lucas Paqueta. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er að íhuga að bjóða í Lucas Paqueta, miðjumann Lyon. Mirror segir frá.

Norður-Lundúnafélagið er í leit að miðjumanni og gæti Paqueta verið lausnin.

Lyon er þó sagt vilja 67 milljónir punda fyrir Brasilíumanninn. Ljóst er að það verð þyrfti að lækka svo Arsenal myndi kaupa hann.

Paqueta á þrjú ár eftir af samningi sínum við Lyon og liggur franska félaginu því ekkert á að selja hann.

Miðjumaðurinn skoraði ellefu mörk og lagði upp sjö í 43 leikjum með Lyon á síðustu leiktíð.

Paqueta á þá að baki 33 leiki fyrir brasilíska A-landsliðið.

Fyrir hjá Arsenal eru Brasilíumennirnir Gabriel Jesus, Gabriel, Gabriel Martinelli og Marquinhos.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina