fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
433Sport

Lukaku mættur til að klára dæmið – „Ég er svo glaður“

Helgi Sigurðsson
Miðvikudaginn 29. júní 2022 08:00

Romelu Lukaku.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Romelu Lukaku er mættur til Mílanó þar sem hann mun fara í læknisskoðun og ganga frá skiptum sínum til Inter. Hann kemur frá Chelsea á láni en ítalska félagið greiðir 8 milljónir evra fyrir að hafa hann á næstu leiktíð.

Lukaku lenti í Mílanó í morgun þar sem stuðningsmenn tóku á móti honum.

Belginn hefur grátbeðið um að komast burt frá Chelsea og vildi aðeins skrifa undir hjá Inter þar sem hann var fyrir dvölina hjá Chelsea.

Lukaku kostaði Chelsea tæplega 100 milljónir punda í fyrra en stóðst ekki væntingar á sínu fyrsta tímabili og vildi svo komast aftur til Ítalíu.

Stuðningsmenn Chelsea eru alls ekki ánægðir með Lukaku sem virtist gefast upp eftir að hafa fengið smá mótlæti á síðasta tímabili.

„Ég er svo glaður,“ sagði Lukaku þegar hann gekk út af flugvellinum í Mílanó.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Albert er veikur og getur ekki tekið þátt

Albert er veikur og getur ekki tekið þátt