fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Verður handtekinn ef hann gefur sig ekki fram við lögreglu

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. maí 2022 13:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Nottinghamshire mun handtaka Ollie McBurnie framherja Sheffield United ef hann gefur sig ekki fram við lögrelgu.

Burnie þarft að svara til saka eftir að hafa sparkað og stappað ofan á stuðningsmanni Notingham Forrest á þriðjudag.

Allt fór úr böndunum þegar Nottingham tryggði sig áfram í úrslitaleikinn um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Ráðist var á Billy Sharp leikmann Sheffield og hefur karlmaður verið handtekinn vegna þess.

Seint í gær birtist svo myndskeið af McBurnie að stappa ofan á stuðningsmanni Nottingham og skoðar lögreglan nú málið.

Að leik loknum hlupu stuðningsmenn Nottingham inn á völlinn en einn þeirra ákvað að ráðast á Billy Sharp leikmann Sheffield.

Atvikið vekur mikinn óhug en Sharp var nokkuð særður eftir árásina en maðurinn skallaði hann beint í andlitið.

Lögreglan í Nottingham hefur svo handtekið mann sem grunaður er um árásina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með