fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Hélt margoft framhjá og drykkjan nánast skemmdi hjónabandið: Eiginkonan opnaði sig – ,,Var alls ekki ásættanlegt“

433
Sunnudaginn 27. ágúst 2023 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri heimildarmynd um lífshlaup Wayne Rooneys til þessa, tjáir eiginkona hans Coleen sig um mörg framhjáhöld hans í sambandi þeirra. Hún segir hegðun hans langt í frá ásættanlega en segist jafnframt hafa fyrirgefið honum.

Hjónin hittust fyrst þegar að þau voru  unglingar og eiga nú að baki 13 ára hjónaband sem hefur oft ratað á forsíður blaðanna í Bretlandi.

Coleen hefur haldið tryggð við Wayne þrátt fyrir hin ýmsu vandamál hans með drykkju sem og fjölmörg framhjáhöld hans.

,,Lífið heldur áfram og ég held áfram. Hegðunin er ekki ásættanlegt en ég tel mig samt geta fyrirgefið honum. Það er alls ekki ásættanlegt hvað hann hefur gert en þetta gerðist og það var á öðru tímabili í lífi okkar. Nú höfum við sagt skilið við þann kafla,“ sagði Coleen Rooney í nýrri heimildarmynd um eiginmann sinn Wayne Rooney.

Hún segir það í raun ótrúlegt að þau séu enn saman miðað við allt.

,,Við erum heppinn með að við bjuggum bæði yfir styrknum og gátum reitt okkur á stuðning hvers annars og fólksins í kringum okkur til þess að halda áfram saman. Það er eitthvað sem við höfum þurft að leggja mikla vinnu í. Ég stæði ekki hér ef ég hefði ekki fyrirgefið honum,“ sagði Coleen.

Coleen staðfesti það einnig í myndinni að Wayne mætti ekki fá sér í glas án þess að fylgst væri með honum. Það er alltaf einstaklingur sem hann getur treyst í kringum hann þegar að hann fær sér í glas til þess að passa upp á það að hann geri ekki skandala.

Wayne komst síðast á forsíður blaðanna í júlí á síðasta ári eftir að myndir af honum sofandi á hótelherbergi með tveimur stelpum fóru í dreifingu.

Ný heimildarmynd um lífshlaup Wayne Rooney til þessa var frumsýnd nýlega en hún er ðgengileg á streymisveitu Amazon Prime.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Útsendarar United og Tottenham tóku út Cristiano Jr í gær

Útsendarar United og Tottenham tóku út Cristiano Jr í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola

Wirtz og foreldrar hans flugu til Manchester í gær og funduðu með Guardiola
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin

Frábært framtak Amorim – Borgar úr eigin vasa svo starfsfólkið sjái úrslitin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gætu keypt leikmann andstæðingsins beint eftir úrslitaleikinn

Gætu keypt leikmann andstæðingsins beint eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sunderland á Wembley eftir ótrúlega dramatík

Sunderland á Wembley eftir ótrúlega dramatík
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?

Gera stólpagrín að leikmanni Manchester United – Var hann í alvöru að þessu?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd
433Sport
Í gær

Íslendingar á ferð og flugi – Sævar til Noregs og Logi líklega til Tyrklands á 130 kúlur

Íslendingar á ferð og flugi – Sævar til Noregs og Logi líklega til Tyrklands á 130 kúlur
433Sport
Í gær

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar