Bandaríska geimferðastofnunin NASA skýrði frá þessu í gær. Sjónaukinn er sá öflugasti sem nokkru sinni hefur verið smíðaður en með honum á að vera hægt að nema ljós frá því skömmu eftir Miklahvell fyrir 13,7 milljörðum ára en alheimurinn varð til í Miklahvelli. Með þessu munu vísindamenn öðlast betri skilning á hvernig alheimurinn leit út á upphafsdögum sínum.
Á næstu mánuðum verður aðalspegill sjónaukans prófaður og allskonar prufur fara fram á ýmsum hlutum sjónaukans til að ganga úr skugga um að allt virki eins og það á að gera.
Í sumar hefst síðan vísindavinna sjónaukans. NASA reiknar með að fá fyrstu myndirnar frá honum í júní eða júlí.
Sjónaukanum var skotið á loft frá jörðinni á jóladag með Ariane 5 eldflaug. James Webb leysir Hubble-geimsjónaukann af hólmi en honum var skotið á loft 1990 og var í notkun þar til á síðasta ári.
James Webb er miklu stærri en Hubble og þurfti að brjóta hann saman til að pláss væri fyrir hann í toppi eldflaugarinnar. Síðan hófst flókið ferli við að breiða úr spegli hans og sólskildi. Kostnaðurinn við verkið er rúmlega 10 milljarðar dollara.