fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þetta er upphæðin sem United þarf að borga fyrir Pochettino

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 23. nóvember 2021 12:00

Mauricio Pochettino. GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United þarf að borga 8,4 milljónir punda til að fá Mauricio Pochettino lausan frá PSG. Um er að ræða tæpan 1,5 milljarð sem þarf til að losa hann úr starfi.

Fram kemur í fréttum í dag að leikmenn PSG búist við því að Pochettino hætti á næstu dögum til að taka við United.

PSG hefur hafið samtalið við Zinedine Zidane um hvort hann hafi áhuga að snúa til heimalandsins og taka við franska stórliðinu. AS á Spáni segir frá.
Pochettinho þjálfari PSG er klár í að taka við Manchester United og er í raun sagður mjög spenntur fyrir því. The Times segir frá þessu.

Zidane vill ekki taka við United en eiginkona hans vill búa á Spáni eða í Frakklandi. Pochettinho verður í Manchester síðar í dag þegar PSG kemur til borgarinnar, liðið á leik við Manchester City á morgun.

Stjóranum frá Argentínu líður ekki vel í París en fjölskylda hans er búsett í Englandi eftir dvöl hans þar í landi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate vill bara ræða við stóru strákana

Southgate vill bara ræða við stóru strákana