Arnar Þór Viðarsson mun í næstu viku velja landsliðshóp sinn fyrir tvo síðustu leikina í undankeppni HM. Mikið hefur gengið á undanfarna mánuði en undankeppnin er senn á enda. Er Arnar byrjaður að teikna upp hóp sinn sem kemur saman 8 nóvember.
Mikil eftirvænting er fyrir liðsvali Arnars en undanfarna mánuði hefur mikið gengið í þeim efnum eins og frægt er. Hópurinn sem Arnar velur í næstu viku er fyrsti hópurinn sem hann velur eftir að Vanda Sigurgeirsdóttir tók við sem formaður KSÍ.
Íslenska liðið mætir Rúmeníu og Norður-Makedóníu á útivelli í verkefninu. Ísland er með átta stig eftir átta leiki og situr í næst neðsta sæti riðilsins. Tveir sigrar í síðustu tveimur leikjunum gætu dugað til að koma liðinu ofar í riðlinum en fjögur stig eru í Armeníu og Norður-Makedóníu.
Aron Einar Gunnarsson var ekki í síðasta landsliðshóp, hefur Vanda Sigurgeirsdóttir formaður sambandsins boðað það að leikmaður sem er undir lögreglurannsókn sé ekki í hópnum.
Íslensk kona hefur lagt fram kæru hjá lögreglu og sakar Aron og Eggert Gunnþór Jónsson um gróft kynferðisbrot árið 2010. Báðir hafna sök í málinu. Það er því ólíklegt að Arnar velji Aron Einar í hóp sinn í næstu viku á meðan málið er á borði lögreglu.
Kolbeinn Sigþórsson er frá vegna meiðsla og er talið ólíklegt að hann nái heilsu fyrir verkefnið. Kolbeinn var settur út úr landsliðshópi Íslands í ágúst vegna máls frá árinu 2017. Hins vegar er talið líklegt að Kolbeinn sé aftur í boði nái hann heilsu. Kolbeinn er ásamt Eiði Smára Guðjohnsen markahæsti leikmaður í sögu Íslands.
Jóhann Berg Guðmundsson var ekki með í síðasta verkefni vegna meiðsla en hann kvaðst einnig ósáttur með vinnubrögð KSÍ undanfarna mánuði. Jóhann hefur verið á bekknum í síðustu leikjum Burnley og því óvíst hvort heilsa hans hans sé komin í gott lag.
Alfreð Finnbogason er mættur aftur inn á völlinn hjá Augsburg í Þýskalandi. Alfreð hefur ekki spilað fyrir landsliðið eftir að Arnar Þór Viðarsson tók til starfa vegna meiðsla. Óvíst er hvort hann gefi kost á sér eftir langvarandi fjarveru hjá Augsburg.
Rúnar Már Sigurjónsson hefur ekki verið í síðustu hópum Arnars en hann hefur spilað undanfarna leiki með CFR Cluj í Rúmeníu. Þegar Arnar valdi hóp sinn síðast var talað um að Rúnar væri ekki í nægilegri leikæfingu en það hefur breyst. Stjórn KSÍ hafði ætlað að banna Rúnari að mæta í verkefni landsliðsins í ágúst en hann hafði þá sjálfur þegar dregið sig úr hópnum.
Þá er ljóst að Gylfi Þór Sigurðsson spilar ekki fótbolta á næstunni, er hann í farbanni vegna rannsóknar lögreglu á kynferðisbroti gegn ólögráða einstaklingi í Bretlandi.
Arnar Þór mun velja hóp sinn um miðja næstu viku fyrir leikina tvo þar sem þessum spurningum verður líklega svarað.