fbpx
Sunnudagur 21.desember 2025
Fréttir

Ætla ekki að byggja virkjanir fyrir gagnaver

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. apríl 2021 09:00

Gagnaver Advania í Reykjanesbæ Mynd/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsvirkjun ætlar ekki að byggja nýjar virkjanir til að mæta orkuþörf gagnavera sem eru að stærstum hluta notuð til að grafa eftir rafmynt. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að fyrirtækið finni fyrir aukinni eftirspurn vegna gagnavera.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Verð á rafmyntum hefur snarhækkað á síðustu mánuðum og hefur það haft í för með sér að sífellt fleiri sækjast eftir að kaupa og grafa eftir rafmynt. „Þó við höfum verið að selja orku til gagnavera hefur þetta aldrei haft áhrif á fjárfestingarákvarðanir okkar,“ er haft eftir Herði.

Ástæðan fyrir því er að þetta er markaður sem erfitt sé að spá fyrir um hvernig þróist. „Þegar við byggjum virkjanir förum við í langtímasamband með ábyrgðum við ákveðna viðskiptavini,“ sagði hann.

Raforkan sem hefur verið seld til gagnavera var að hluta orka sem var ekki hægt að nýta til stóriðnaðar. Þegar þetta snúist við verður minna til skiptanna.

Hörður sagðist telja að gagnaver eigi mikla framtíð fyrir sér og að það sé mikilvægt að fá stór þekkingarfyrirtæki hingað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Líkamsárás í Kópavogi – Nefbraut konu

Líkamsárás í Kópavogi – Nefbraut konu
Fréttir
Í gær

Sérkennilegt ástand hjá Auto Park – Eigendaskipti í skugga ógreiddra launa

Sérkennilegt ástand hjá Auto Park – Eigendaskipti í skugga ógreiddra launa
Fréttir
Í gær

Lögregluaðgerð með aðstoð sérsveitar stendur yfir á Selfossi

Lögregluaðgerð með aðstoð sérsveitar stendur yfir á Selfossi
Fréttir
Í gær

Kristján Sívarsson fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar – Olli höfuðkúpubroti konu

Kristján Sívarsson fær ekki að áfrýja til Hæstaréttar – Olli höfuðkúpubroti konu
Fréttir
Í gær

Heimsþekktur grínisti gerði óspart grín að nafni íslenskrar konu – „Er það í alvöru nafnið þitt?“

Heimsþekktur grínisti gerði óspart grín að nafni íslenskrar konu – „Er það í alvöru nafnið þitt?“
Fréttir
Í gær

Súlunesmálið: Afi Margrétar sagði föður hennar hafa setið til borðs með ullarhúfu á höfðinu til að leyna áverkum

Súlunesmálið: Afi Margrétar sagði föður hennar hafa setið til borðs með ullarhúfu á höfðinu til að leyna áverkum