fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Forsíðuviðtalið: Lilja Nótt lýsir undarlegu andrúmslofti í leikhúsinu – „Það voru bara prufaðar leikkonur. Leikararnir þurftu ekki að fara í prufur“

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 26. mars 2021 15:29

Lilja Nótt lofar góðri spennu um páska - hún leikur eitt aðalhlutverkið í spennuþáttunum Systrabönd. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkona Lilja Nótt Þórarinsdóttir fer með eitt aðalhlutverkið í nýrri spennuþáttaröð, Systrabönd, sem verður sýnd um páskana í Sjónvarpi Símans. Hún hefur aldrei gefist upp á leiklistinni þrátt fyrir að hafa glímt við kjaftamaskínur og kvíðaköst. Hún lærði að skapa sína eigin velgengni og vera óhrædd við að velja verkefnin. Lilja Nótt er í helgarviðtali DV sem kom út í dag.

Lilju var boðinn árssamningur bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu þegar hún útskrifaðist og valdi Þjóðleikhúsið þar sem hún lék hið eftirsótta hlutverk kvenhetjunnar Snæfríðar Íslandssólar í Íslandsklukkunni. „Ég gaf mig alla í hlutverkið en því var misvel tekið. Fólkinu fannst ég góð en bransanum ekki. Það er allt í þessu fína en það eru þessi átök sem voru í þessu húsi sem voru það ekki. Konur sérstaklega lenda í þessari kjaftamaskínu þar sem einhvers staðar segir einhver eitthvað um að hún sé erfið og það sé ekki hægt að vinna með henni en oftast getur enginn sagt af hverju eða nefnt dæmi. Ástæðan er þá kannski að einhverjum einum karli fannst erfitt að vinna með henni því hún var ekki sammála öllu sem hann sagði.“

Lilja segist sjálf hafa gerst sek um að dæma konu úr leik því hún hafði heyrt að viðkomandi væri erfið í samstarfi. „Ég var að leita að manneskju til að skrifa með mér handrit og Þórhallur Gunnarsson stingur upp á konu sem ég afskrifaði strax. Þegar hann spurði mig hvort ég þekkti hana eða hefði unnið með henni varð ég að átta mig á að ég var þarna orðin hluti af vandamálinu. Þetta var svo gott á mig – og ég var svo pirruð á því að ég hefði tekið þátt í þessu því ég hafði lent í hinni hliðinni.“

Þetta fyrsta ár Lilju í Þjóðleikhúsinu hafði hún tekið þátt í nokkrum uppsetningum þegar farið var að kalla fólk í prufur fyrir næsta leikár. „Það voru bara prufaðar leikkonur. Leikararnir þurftu ekki að fara í prufur, þeir fengu bara sín hlutverk, en leikkonurnar urðu að mæta í prufur. Eðlilega varð mikill kurr í húsinu og mikið talað inni í lokuðum herbergjum. Ég með mína útblásnu réttlætiskennd og litlu meðvirkni gat ekki setið á mér þegar ég var boðuð í prufu og rétti upp hönd og sagði: Má ég spyrja að einu, af hverju er bara verið að prufa konur?“

Lilja segir að það hafi ekki verið tekið vel í þá fyrirspurn og fátt hafi verið um svör. „Ég var ung og nýútskrifuð og átti bara að þegja og vera þakklát fyrir að vera í vinnu. Ég fékk svo ekkert hlutverk í þessu leikhúsi árið eftir. Ég fór í kjölfarið mjög langt niður. Ég hafði fengið þarna gífurlega eftirsótt hlutverk í Íslandsklukkunni sem átti að vera upphafið mitt. Ég skildi ekki hvar mér hafði mistekist því ég lagði mig alla fram. Svo ári seinna kemur í ljós að kjaftamaskínan hafði farið í gang eftir þessa spurningu mína, að ég væri svo erfið og mikil stjarna og þættist of góð til þess að mæta í prufu. Hvort maskínan kom því eitthvað við að ég var ekki ráðin veit ég ekki en það hjálpar ekki. Þess vegna var það svo hugvekjandi fyrir mig að átta mig á að ég hafði sjálf tekið þátt í þessu með því að vilja ekki íhuga þessa konu sem handritshöfund því ég „hafði heyrt“ að hún væri erfið sem hún var svo alls ekki og er algerlega brilljant.“

 

Smelltu hér til að lesa viðtalið í heild sinni. 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 6 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga