Freyja Egilsdóttir Mogensen, sem lýst er eftir í Danmörku, hefur búið þar um árabil og stofnaði fjölskyldu þar í landi. Hún er frá Selfossi. Ættingjar hennar búa flestir á Íslandi en systir hennar býr einnig í Danmörku. Freyja er fædd árið 1977 og er því á 44. aldursári.
Eins og við greindum frá fyrr í kvöld hefur danska lögreglan lýst eftir Freyju, sem býr á Austur-Jótlandi, og hefur verið greint frá hvarfi hennar í helstu fjölmiðlum Danmerkur.
Hvorki vinir né ættingjar vilja tjá sig frekar um mál hennar að öðru leyti en því að þau séu í áfalli og séu að melta þau tíðindi að manneskja þeim náin sé horfin.
Freyja var virk á Facebook-síðu sinni framan af ári og birti opnar færslur til 14. janúar. Þar kom meðal annars fram að hún hefur fengið fyrri sprautu í bólusetningu gegn Covid-19 en hún starfar við umönnun á dvalarheimili aldraðra í Odder á Jótlandi.
Freyja hvarf á fimmtudagskvöld í síðustu viku eftir að hún lauk vinnu þann dag. Í dönskum fjölmiðlum kemur fram að lögreglan hafi upplýsingar um að Freyja hafi hugsanlega farið með lest frá Malling síðasta föstudag um klukkan 08.30. Á laugardaginn fékk vinnuveitandi hennar sms úr síma hennar þar sem hún tilkynnti veikindi. Síðan hefur enginn heyrt frá henni og í morgun var lögreglunni tilkynnt að hennar væri saknað.
Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að Freyja sé 165 sm á hæð, grönn með ljósbrúnt axlarsítt hár. Hún notar gleraugu.
Ekstra Bladet segir að lögreglan sé nú með „umfangsmikla leit“ í gangi og séu lögreglumenn að kanna með ferðir hennar á mörgum stöðum.
Lögreglan biður alla sem geta veitt upplýsingar um ferðir Freyju síðan á fimmtudagskvöld að hafa samband strax.