fbpx
Sunnudagur 05.október 2025
Fréttir

Tugir húsa á nýju hættusvæði á Flateyri – Varnargarðar eru hvergi fullkomlega öruggir

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 1. desember 2020 07:55

Hér sjást höfnin og varnargarðurinn á Flateyri. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt hættumat hefur verið gert fyrir Flateyri og hefur hættusvæðið stækkað við það. Á þriðja tug húsa er nú komin inn á hættusvæði C en það er efsta stig. Um sjötíu hús er komin á ýtrasta rýmingarstig. Hættusvæði C nær nú 250 metrum lengra inn á höfnina og inn á land sunnan og vestan við hana en áður en mikið tjón varð á höfninni í janúar þegar snjóflóð féll úr Skollahvilft.

Fréttablaðið skýrir frá þessu. „Það þarf að taka tillit til þess í ríkisviðbúnaði að virkin eru hvergi fullkomlega örugg. Þegar aðstæður verða mjög slæmar er möguleiki á að grípa þurfi til rýmingar til að tryggja öryggi,“ er haft eftir Tómasi Jóhannessyni, fagstjóra og sérfræðingi í ofanflóðamálum hjá Veðurstofu Íslands.

Hann sagði einnig að þessi áhrif, sem voru þekkt fyrir, séu miklu öflugri en ráð hafi verið gert fyrir. Af þessum sökum þurfi að finna leiðir til að forða því að flóð endi í höfninni. Hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar benti á það í nýlegri skýrslu að varnargarðarnir hafi beint flóðinu inn í höfnina og að það væri óviðunandi fyrir atvinnulíf þorpsins.

Nú er unnið að hættumati fyrir fimm sambærilega varnargarða og eru á Flateyri, það er á Ísafirði, Siglufirði, Bíldudal, Ólafsfirði og Neskaupstað. „Það er gert ráð fyrir ákveðinni hættu á yfirflæði og að snjódýpt verði meiri en stoðvirki eru hönnuð fyrir. Það er undantekningarlaust hættusvæði undir öllum þessum varnarvirkjum og ákveðin áhætta í byggðinni þar undir,“ er haft eftir Tómasi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Telja að skuggaskip Rússa geti tengst níu drónaárásum í Evrópu

Telja að skuggaskip Rússa geti tengst níu drónaárásum í Evrópu
Fréttir
Í gær

Þjóðkirkjan búin að fá nóg og vill láta hækka sóknargjöldin um 60 prósent – „Þessu þarf að linna“

Þjóðkirkjan búin að fá nóg og vill láta hækka sóknargjöldin um 60 prósent – „Þessu þarf að linna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Elon Musk rak starfsmann á staðnum sem benti honum á að hann væri orðinn óvinsæll

Elon Musk rak starfsmann á staðnum sem benti honum á að hann væri orðinn óvinsæll
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Telur leigjendur á Íslandi vantalda um 75.000 – „Það er nú svolítið mikil skekkja.“

Telur leigjendur á Íslandi vantalda um 75.000 – „Það er nú svolítið mikil skekkja.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar í miðbænum kæra framkvæmd sem þeir segja óframkvæmanlega – Efasemdir hjá borginni hurfu

Íbúar í miðbænum kæra framkvæmd sem þeir segja óframkvæmanlega – Efasemdir hjá borginni hurfu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Birta mynd af meintum hryðjuverkamanni í Manchester

Birta mynd af meintum hryðjuverkamanni í Manchester