fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025

Áhrifavaldur sökuð um að fótósjoppa barnamynd af sér

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 16. júlí 2020 22:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn Lauren Goodger hefur ekki farið varhluta af þeirri brjálæðislegu útlitsdýrkun sem tröllríður heiminum. Þessi 33 ára gamla kona hefur gengist undir svo margar lýta- og fegrunaraðgerðir að hún er orðin nánast óþekkjanleg. En það dugir ekki til. Í gær birti hún fallega minningu á Instagram; mynd af sér fimm ára gamalli ásamt pabba sínum, en glöggir fylgjendur tóku eftir að ekki var allt með felldu. Á myndinni, sem birtist í sjálfsævisögu hennar frá árinu 2013,  var búið að eiga við útlit hennar og pabba hennar.

Lauren hafði síkkað á sér hárið, kryddað það með ljósum strípum, stækkað varirnar, fjarlægt freknur og hrukkur við pírð augun. Og pabbi gamli fékk líka mýkri andlitsdrætti auk þess sem sumir tóku eftir því að hún hafði gert varirnar á honum fyllri.

Lauren hefur lengi legið undir ámæli fyrir að breyta myndum af sér og gefa þannig fylgjendum sínum enn brenglaðri sýn á veruleikann. Talsmaður hennar gerði þó lítið úr málinu og sagði systur Lauren hafa sett filter á hana áður en hún sendi henni myndina og það hefði einfaldlega farið framhjá Lauren og bætti svo við; „Lauren finnst hlægilegt að fólk hafi meiri áhyggjur af breyttum myndum af henni heldur en heimsfaraldrinum og heimsmarkaðshagkerfinu.“

Fyrir: Falleg mynd af feðginum.

Eftir: Hér hefur fótósjopp fengið að njóta sín.

2010: Lauren fyrir lýtaaðgerðir.

2020: Lauren hefur farið hamförum í útlitsbreytingum.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Agla María var steinhissa: ,,Ég skildi ekkert í þessu“

Agla María var steinhissa: ,,Ég skildi ekkert í þessu“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hallgrímskirkja önnur fallegasta í heimi

Hallgrímskirkja önnur fallegasta í heimi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Steini Halldórs spurður út í fyrirsögn í kvöld: ,,Mér er skítsama um hana“

Steini Halldórs spurður út í fyrirsögn í kvöld: ,,Mér er skítsama um hana“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu markið sem tryggði Finnum sigurinn í kvöld

Sjáðu markið sem tryggði Finnum sigurinn í kvöld
Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Finnst sjálft lýðræðið vera undir á Alþingi

Finnst sjálft lýðræðið vera undir á Alþingi
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi

Tíu ára bandarísk stúlka lést úr hjartaáfalli í hitabylgjunni í Frakklandi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni

Gyokeres vill slíta öll tengsl við Portúgal og sparkar kærustunni
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband

Stelpurnar okkar fengu frábærar móttökur fyrir fyrsta leik – Myndband

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.