fbpx
Þriðjudagur 20.maí 2025
Fréttir

Lögreglan kemur upp um stórtæka amfetamín-framleiðslu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 22. apríl 2020 20:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í kvöld tilkynningu þar sem greint er frá rannsókn á stórtækri amfetamínframleiðslu. Sjö voru handteknir vegna málsins og ráðist var í á annan tug húgsleita þar sem lagt var hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.

Lögreglan segir að samanlagt verðmæti amfetamínbasa og tilbúinna fíkniefna sem lagt var hald á nemi um 230 milljónum króna. Í tilkynningunni segir:

„Undanfarna mánuði hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft til rannsóknar skipulagða brotastarfsemi, sem snýr m.a. að ætlaðri framleiðslu amfetamíns og peningaþvætti. Málið er mjög umfangsmikið, en átta manns voru handteknir í þágu rannsóknar þess í janúar og í framhaldinu voru sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sexmenningarnir voru í haldi lögreglu frá tveimur að tólf vikum, en hinir sömu eru nú allir lausir úr gæsluvarðhaldi. Samhliða var ráðist í á annan tug húsleita víða á höfuðborgarsvæðinu og lagt hald á fíkniefni, vopn og fjármuni.

Rannsókn málsins hefur miðað vel, en einn til viðbótar var handtekinn í lok síðasta mánaðar og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Það hefur nú verið framlengt og situr viðkomandi því enn í gæsluvarðhaldi. Tvær húsleitir voru framkvæmdar í tengslum við handtöku þess síðastnefnda og fannst þá jafnframt talsvert magn af amfetamínbasa. Það er mat lögreglu að vökvann hafi átt að nota við framleiðslu amfetamíns hérlendis.

Alls hefur verið lagt hald á 13,5 lítra af amfetamínbasa í þágu rannsóknarinnar, auk tilbúinna fíkniefna, sem talið er að hafi verið framleidd hérlendis. Þá hefur lögreglan enn fremur tekið í sína vörslu mikið magn stera í þágu málsins. Miðað við dóma í hliðstæðum málum má ætla að verðmæti fyrrnefndra, haldlagðra fíkniefna sé í kringum 230 m.kr. (að teknu tilliti til amfetamínbasans, þ.e. styrkleikans). Þess utan hleypur verðmæti haldlagðra muna í þessu umfangsmikla máli á milljónum króna.“

Greint er frá öðrum óskyldum málum, meðal annars hinu svokallaða Hvalfjarðarmáli, þar sem grunaðir brotamenn voru handteknir í Hvalfjarðargöngunum. Þá er minnt á upplýsingasíma lögreglu og aðrar leiðir til að koma ábendingum til lögreglu:

„Fleiri umfangsmikil mál eru til rannsóknar hjá embættinu og má þar nefna svokallað Hvalfjarðarmál. Það er með öllu óskylt málinu sem hefur verið reifað hér að ofan, en snýst þó einnig um skipulagða brotastarfsemi, þ.e. peningaþvætti og framleiðslu fíkniefna. Rannsókn þess miðar sömuleiðis vel, en ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um það að svo stöddu. Við aðgerðirnar í báðum málunum hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og tollyfirvalda.

Að endingu má geta þess að andlag fjármunabrotarannsókna hjá miðlægri rannsóknardeild embættisins í dag er í kringum hálfur milljarður. Þar leikur peningaþvætti stórt hlutverk og tengist það skipulagðri brotastarfsemi.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

„Þarf íþróttahreyfingin virkilega að fórna ímynd sinni og forvarnarhlutverki fyrir skammtímafjárhagslegan ávinning?“

„Þarf íþróttahreyfingin virkilega að fórna ímynd sinni og forvarnarhlutverki fyrir skammtímafjárhagslegan ávinning?“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Trump er brjálaður út í fjölmiðilinn – „Ég aðvara þessa „drullusokka“ aftur“

Trump er brjálaður út í fjölmiðilinn – „Ég aðvara þessa „drullusokka“ aftur“
Fréttir
Í gær

Beina til eigenda að gæta að gæludýrunum í góða veðrinu

Beina til eigenda að gæta að gæludýrunum í góða veðrinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Byggði kastala til að vinna hjarta Ástu – „Það þurfti eitthvað alveg extra til að loka þessum ástarsamningi“

Byggði kastala til að vinna hjarta Ástu – „Það þurfti eitthvað alveg extra til að loka þessum ástarsamningi“