Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sætt harðri gagnrýni vegna framgöngu sinnar á fundi með læknaráði, sem og þurft að svara fyrir bága stöðu Landspítalans, ekki síst bráðamóttökunnar, en læknar líkja stöðunni þar sem neyðarástandi.
Heilbrigðisráðuneytið birtir síðan í dag frétt á heimasíðu sinni, þar sem tíundaðar eru staðreyndir um heilbrigðisstofnanir og fjárveitingar síðustu ára, með áherslu á þeirri aukningu sem orðið hefur.
Í fréttinni kemur fram að rúmir 5.6 milljarðar króna hafi farið í aukin framlög til Landspítalans:
„Staðhæfingar sem fram hafa komið í opinberum umræðum, meðal annars um stórfelldan niðurskurð á Landspítala og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni, eiga ekki við rök að styðjast.
Framlög ríkisins til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins jukust um 24% á árabilinu 2017 – 2020.
Aukningin til Landspítala nam um 12% á sama tímabili, 8% til Sjúkrahússins á Akureyri og 10% að meðaltali til heilbrigðisstofnananna sex sem starfa um allt land.
Aukin framlög til Landspítalans um 12% nema í krónum talið rúmum 5,6 milljörðum króna. Tekið skal fram að í meðfylgjandi tölum um aukin framlög eru launa- og verðlagsbætur undanskildar. Byggingaframkvæmdir eru einnig undanskildar, þannig að framlög vegna uppbyggingar nýs Landspítala eru ekki meðtalin. Hér er því um að ræða aukin framlög til heilbrigðisþjónustu og reksturs hennar.
Eins og fram kom í máli Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, í sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld eru margir þættir til þess fallnir að styrkja og bæta stöðu Landspítalans aðrir en að auka framlög til sjúkrahússins. Þar nefndi hann sérstaklega áhrifin af því að efla heilsugæsluna, hjúkrunarþjónustu og aðra heilbrigðisþjónustu út um landið, því um eina heild sé að ræða. Heilbrigðisráðuneytið birti nýverið samantekt með upplýsingum um það helsta sem gert hefur verið af hálfu heilbrigðisyfirvalda að undanförnu í þessum efnum.“